You are here: Forsíða Body.is Blogg Björn Blogg

Blogg

Senda hlekk á þessa síðu til vinar
 ljósi þess að ný og stórlega endurbætt síða er væntanleg í loftið þá ætlum við að enda hérna gamla lookið á bloggi, við félagarnir ætlum að halda úti bloggi auk þess að setja áfram inn nytsaman fróðleik, munum setja inn fleiri æfingaprógröm og alls kyns nytsamlegt dótarí, nýja síðan mun verða mun notendavænni og rúsínan ú pulsuendanum verður "spjall" þar getur fólk tjáð sig kröftuglega um allt sem tengist heilsu og heilsuræktinni, okkar mark er og hefur alltaf verið að hafa þessa síðu sem punkt fróðleiks og afþreyingar, síðan er enn ung og erum við hvergi hættir. Mikil törn er hjá okkur Kidda í einkaþjálfuninni og fjarþjálfuninni auk mjög stífra æfinga þó meira hjá Kidda undanfarið þar sem hann gerði sér lítið fyrir og vann NM og fór núna eldsnemma í morgun til Kaliningrad í Rússlandi til að keppa á Heimsmeistaramótinu, fjölmiðlar hafa ekki skipt sér mikið af stórglæsilegum árangri Kidda Sam og er það í minnsta lagi stórfurðulegt að mínu mati og fleiri, ef ég á að segja eins og er þá er Kiddi í betra formi en hann var á NM og er hann vonandi líklegur til afreka á meðal þeirra bestu.

Ég er um þessar mundir að byrja á nýju matar og lyftingaprógrammi sem ég bind miklar vonir við, ég er að setja mér það markmið að vera orðinn töluvert þykkari og þyngri að 4 mánuðum liðnum (er í rúmum 94 kg í dag, dæmi hver fyrir sig ;)) og ætla þá að fara huga að "shreddi" og er að horfa í Bikarmótið að ári liðnu í Fitness, ég vil ekki vera í tímaþröng vegna mikilla anna í vinnu og því er betra að nota þolinmæðina og nýta tímann sem ég hef, han ner ríflegur og ætti ég að verða helgóður og sáttur að ári liðnu (það er erfitt að hafa fullkomnunar-áráttu :-P), að nokkru leiti þá finnst mér ég vanta þroska í líkamann á vissum stöðum til þess að vera fullkomlega sáttur og úr því er eg að vinna með þessu plani semeg hef sett upp, þessi strúktúr er frekar einfaldur eins og hann getur orðið ég er þó að vinna á svokölluðu þrískiptu-tvískiptu prógrammi sem er þannig sett að ég er að vinna á hverjum vöðvahóp 2x í viku, þetta lyftinga-prógram sá ég upphaflega í bókinni Encyclopedia modren bodybuilding sem Arnold Swartzenegger nokkur gaf út en ég held mikið úpp á þenann doðrant, ég er að vísu búinn að fiffa prógrammið til eftir mínu eigin höfði, til að auka ákefð á vissa parta sem munu njóta mestrar ákefðar til að byrja með a.m.k. Matarræðið er svona eins þægilegt eins og það getur orðið því ég leyfi mér að borða nánast hvað sem er og í rauninni er það ekkert sem ég þarf að forðast :-)  Ekki misskilja mig að því leitinu að ég er ekki að fara lifa á hamborgurum og álíka viðbjóði, því fer víðs fjarri. Matarræðið er einfalt, ég þarf að borða kolvetni í ríku mæli eins og slatta af haframjöli og byggi, blanda próteini og hollum fitum með sérstaklega í kringum æfingar og passa að ég verði aldrei svangur að ráði og passa að ég sleppi aldrei nokkurntíman úr máltíð, þetta er í sjálfu sér mjög einföld fræði basic ið er einfaldlega að passa að næg glýkogen birðgar séu allar nægar, að nægur vökvi sé til staðar í líkamanum, að maður nái góðum svefn og hvílist vel, og æft sé skynsamlega, líkaminn sér um rest sjálfur.Ég er sáttur við fyrstu bloggfærsluna og ætla kveðja í bili og lifið heil og hraust :-) Kveðja Bjöddi