You are here: Forsíða Greinar Æfingarprógrömm Æfingaprógram 6-8 vikna 5 skipt

Æfingaprógram 6-8 vikna 5 skipt

icon 5 skipt plan

Hér fyrir ofan er hlekkir sem ég setti inn með æfingaprógrammi til að fara eftir, ég ákvað að gefa ykkur aðgang að þessu prógrammi sem er 5 skipt lyftingarplan.

 

Aðferðafræðin á þessu prógrammi er einföld þið hitið vel upp á high intesity í 10-12 mín og keyrið svo æfingarnar vel í gegn með góðum þyngdum sem eru ekki of þungar svo það verði þið ráðið ekki við endurtekningafjöldan, né of létt heldur. Þið þurfið að finna milliveginn vel í þyngdum og þetta þarf að vinnast sem gæðasett þar sem "negativu" hreyfingarnar eru 100% (negative hreyfingar eru þegar þú slakar þyngdinni til baka, sú hreyfing skal taka 3 sec) - Þannig ef þú ert t.d. að taka bekkpressuþá læturðu stönguna síga hægt niður á brjóst með því spenna á móti og gefa svo kraft í positive hreyfinguna. - Þetta á við um allar æfingar í prógramminu.

Ég setti inn ensku upprunalegu heitin í æfingarnar svo þið getið slegið þeim inn á youtube.com og séð kennslumyndbönd þar ef þið skiljið ekki æfingarnar.

Eftir að æfingunni er lokið þá skaltu nota high intensity interval brennslu í 5-10 mín.

Ég er þess fullviss um að þetta prógram mun hjálpa mörgum til þess að grenna sig og styrkja´. Ef þú ert búin að reyna margar aðferðir og leiðir og ert  að brenna dag eftir dag og ert lítið að lyfta þá snýrðu ferlinu við núna og árangurinn mun ekki láta á sér standa, ég get lofað þér því! - Ég vona að þetta muni falla í góðan jarðveg og fólk muni nota þetta prógram næstu 6-8 vikurnar samviskusamlega.

startið umræðu um þetat prógram með því að setja það á spjallið : http://www.body.is/index.php?option=com_fireboard&Itemid=100 

Ef vakna spurningar þá getið þið sent mér mail á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Björn Þ Sigurbjörnsson einkaþjálfari  
Einkaþjálfaragráða frá ISSA (International Sports Sciences Association)
ACE (American Council on exercise) einkaþjálfari
NSCA-Certified Personal Trainer
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 


Skráning á póstlista