Body.is er vefsíða sem Björn Þór Sigurbjörnsson (Bjöddi) einkaþjálfari í Sporthúsinu og Kristján Samúelsson (Kiddi Sam) einkaþjálfari reka. Markmið vefsíðunnar er að vera afþreyingar og fræðsluvefur fyrir almenning sem hugsar um bætta heilsu og vill fræðast.
Body.is er eina vefsíða landsins sem inniheldur hjálpartæki eins og reiknivelar sem svara helstu spurningum um almennt líkamsástand og næringu. Body.is ætlar að koma á móts við fólkið í landinu með nytsamlegu efni til þess að vera í takt við tíðarandann þar sem við lifum í upplýsingaþjóðfélagi. Á þessari síðu mun efnið vera í senn afþreying og fræðslugefandi fyrir alla hópa því við ætlum okkur að safna öllu saman sem tengist heilsurækt og heilsu og gerum við það með því tengslaneti sem Body.is hefur komið sér upp og varpa fram nýjum víddum á sviði líkams og heilsuræktar.
Við bjóðum upp á Einkaþjálfun, Fjarþjálfun og gerum sérhæfð matarplön fyrir einstaklinga, fjölskyldur og hópa. Ef þig vantar æfingaprógram eða matarprógram þá sérhönnum við það fyrir einstaklinga sem hafa hug á að keppa í fitness eða vaxtarrækt eða vilja auka hæfni sína Íþróttagreinum eins og t.d. handknattleik, knattspyrnu, körfuknattleik og frjálsum íþróttum. Sendu okkur upplýsingar um hvað það er sem þú þarft og við gerum fyrir þig áhrifaríkt prógram .
Þeir sem hafa áhuga á að keppa í Fitness eru á réttum stað.Sendu okkur Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og finnum út hvað við getum gert fyrir þig.
Vefstjóri/Vefsmiður er Erling Ingason erlingv(at)erlingv.com og kunnum við honum bestu þakkir fyrir alla þá hjálp sem hann hefur veitt okkur.
